Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Meðvirkni hjá velferðaráði

 

Það er ekki rétt að hjálpa heimilislausum með því að borga undir þá húsnæði þar sem þeir geta verið í neyslu.

Reglurnar eru fáranlegar.

  "Jórunn segir að þótt engin krafa verði gerð til þess að tilvonandi íbúar heimilisins láti af neyslu hafi reynslan hins vegar sýnt að lífsmunstur breytist mjög mikið við að fá stuðning og hjálp. "Ótrúlegur árangur hefur náðst og auðvitað vonum við að það geti orðið þarna líka. Ég held að þetta sé leiðin til þess að gera bæinn okkar fallegri og skemmtilegri, það er mín sannfæring og þeirra sem best þekkja til á þessu sviði. Ég held að samfélagið þurfi á því að halda að við látum reyna á þetta."

Ég spyr er einhver lausn að færa vandamálin í húsnæði? Og hver er þessi ótrúlegi árangur? Er það að rónunum fækkar á austurvelli. Úr augsýni við alþingishúsið. Er það þessi ótrúlegi árangur. Eða er það að þeir séu með húsnæði.

Ég hef starfað með fíklum og alkahólistum í 4 ár. Og ég hef aldrei sé manneskju ná bata við það að fá húsnæði. Ég hef aldrei sé neinn ná árangri nema fyrsta skrefið sé að vera ekki í neyslu.

 Og svo segir Jórunn:

." Unnið hafi verið faglega að því að finna hentugt húsnæði og hvað staðsetninguna varði sé ekki hægt að fara með svona heimili út fyrir miðsvæðið vegna þess að reynslan sýni að þá færu einstaklingarnir ekki heim.

Ha !!!  bíddu hvað þýðir það.  Ég á rosalega erfitt með að skilja þetta. Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér en eins og ég skil þetta þá er staðsetning húsins valin miðsvæðis af fagfólki svo heimilislausir þurfi ekki að taka strætó frá miðbænum og heim til sín. Þeir eru sem sagt óhæfir til að fara heim til sín ef heimilið er langt frá miðbænum. En hæfir til að búa við hliðina á leikskóla.

Ég gæti skrifað um þetta endalaust. En ég ætla að skreppa niðrá austurvöll í góða veðrið. Ég vona að ég rekist á rónana vini mína svo ég geti spurt þá hvað þeim finnist. Og til að fyrirbyggja allan misskilning þá hef ég ekkert á móti því að verið sé að hjálpa heimilslausum. Þetta er bara ekki rétta leiðin og hjálpar nákvæmlega ekki neitt.   

Þetta er meðvirkni á hæsta stigi. Meðvirkni Drepur!  Og sannleikurinn er sár. Og svo rétt í lokin þá langar mig að svara Önnu Sigríði en hún spyr í blogginu sínu um fréttina. 

"Hvað myndir þú gera ef þú eða ættingi værir í þessum sömu sporum?"

Ég hef verið í sömu sporum og það sem bjargaði mér var fólk sem sagði mér sannleikan. Fólk sem talaði við mig og bar meiri virðingu fyrir lífi mínu en tilfinningum. Fólk sem sá að vandamálið var ekki húsnæðisskortur heldur áfengis og fíkniefnaneysla. Fólk sem sýndi mér mesta kærleika sem til er : SANNLEIKANN


mbl.is Þurfum að gefa þessu tækifæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Best að lifna við(

 

 Jæjæ.. nú er ég vaknaður og kominn á ról..

Búinn að sýna nokkra sýningar í varpskipinu.  "Gyðjan í vélinni"

Einstakur listviðburður sem ekki verður endurtekin.. Það er þvílík ástríða og kraftur í þessari sýningu að fólk bókstaflega á ekki orð.. Aðalega við sem erum að sýna...

Þetta verk er ein mest snilld sem ég hef tekið þátt í ....     Og lang stærsta Q sem ég hef gefið.. ( þeir fatta það sem hafa séð lokaatriðið )..

 

Jæja þá er ég lifnaður við á í Blogg heiminum..

ps Hvert er heimurinn að fara ef menn mega ekki skiftast á skoðunum án þess að vera kærðir...

Rasisti smasisti

 

Kær kveðja

ADDI Ligtenmaster

 

Ég er í Do It-hópnum!


Kannski var honum illt í augunum

Stundum verður manni bara illt í augunum af öllum viðbjóðnum í veröldinni..

En fólk er náttúrulega snillingar í að lesa hugsanir. Þannig að auðvitað vita allir hvað hann er að hugsa. Þegar augun fara á flakk.

 

Einu sinni var ég snillingur í að lesa hugsanir. Svo mikill snillingur að ég þurfti varla að tala við fólk. Ég þorði því heldur ekki stundum. Vegna þess hvað fólk var að hugsa um mig eða ekki hugsa um mig. Eða eða mun hún segja nei eða kannskistsunaælkæ lkjskjlkfja bla bla bla bla bla ....      

Svo snerist allt í hringi í hausnum og ég hætti að nenna að lesa hugsanir hjá öðrum. Ég á nóg með mínar eigin hugsanir.

í dag treysti ég fólki fyrir sínum eigins hausum.......

Og ég reyni að halda mínum temmilega hressum á kantinum.

í dag treysti ég....

 

Heimasíða   W00t

 

Bless bless á kantinum

kv ADDI


mbl.is Simon ranghvolfdi ekki augunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boom Boom Krass "!!2!#

 

Smá hrollur og örlítið raunveruleika tjekk.

Þessi grein er algjör snilld.  Ég fór strax að hugsa hvernig það mundi vera ef allt í einu yrðum við bombuð í tættlur. Aðeins 10 mundu lifa af.

Ég og 9 fyrirsætur. Og það mundi að sjálfsögðu vera á okkar ábyrð að viðhalda Íslenska stofninum. Þeim einstaka og sérstaka kynstofni.

En þetta mun náttúrulega aldrei gerast , þar sem við erum með bandaríkjunum í liði. Ég er með bandaríkjunum í liði gegn hinum vondu hryðjuverka mönnum.

Ég var ekki spurður.  Ég vildi að ísland væri eins og Hafnafjörður, þar sem íbúarnir hafa eitthvað að segja , þeir eru spurðir hvort stækka eigi álver. En ég er ekki spurður hvort ég vilji styðja innrás í annað land. Fara í stríð. Stríð .. Stríð.. þar sem saklaust fólk er limlest, börn og konur.

Ég var ekki spurður.

Saddam hussein var að öllum líkindum engin engill. Og kannski var það mjög góður hlutur að koma honum frá völdum.. En eru þeir ekki að fatta að þeir munu aldrei koma á friði í Írak, nema að þeir fari..   Nota hausinn strákar, nota hausinn..

En það er leiðinlegt og sorglegt að staðan skuli vera eins og hún er. Og kannski væri hún ekkert betri ef Bandaríkjaher hefði ekki ráðist inn í Írak.

Bara ef allir vissu að lausnin er fólgin í kærleikanum.

Fyrirgefa og hjálpa öðrum...

Þá fyrst fær maður vel og mikið borgað.

Kv Addi 

Heimasíða   W00t

 


mbl.is Nær að sprengja Ísland en Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með að Jesú dó í dag .

 

JÁ GÓÐAN DAGINN . MIG LANGAR TIL AÐ ÓSKAРÞÉR TIL HAMINGJU MEÐ AÐ JESÚ ER DÁINN. 

Já hljómar skringilega. Má ég segja þetta? Er líka til bönn við þessum orðum ? Einhver staðar yrði mér hent í fangelsi. Eða formældur eða skrældur.

Ég segi til hamingju með afmælið. Til hamingju með daginn. Til hamingju með að Jesú hafi dáið fyrir syndir okkar. Já amen. Ég er ánægður með kallinn.

Takk Jesú.

PS:  TAKK LÍKA GUÐ

PSS : Og svo er um að gera að kaupa nógu mörg og stór páskaegg í sönnum anda páskan.

 Spurning dagsing : Hvernig tengjast Páskaegg, fermingar  og kristinn trú ?

 Heimasíða   Devil

Eða eins og Woody Allen sagði " Hún var reglulega ófríð stúlka. Andlitið líktist rödd Louis Armstrongs"

Takk í Trú

@ Addi


Höfundur

Arnar Ingvarsson
Arnar Ingvarsson

Addi er 30 ára Matreiðlumaður og Ljósameistari.

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband